Haförn á flugi í Skagafirði

Myndarlegur haförn á flugi. Mynd: Magnús Hinriksson.
Myndarlegur haförn á flugi. Mynd: Magnús Hinriksson.

Myndarlegur haförn kom Magnúsi Hinrikssyni á óvart er hann var í göngutúr í fjörunni neðan Sauðárkróks í morgun. Hafði hann stoppað við Ernuna og var að mynda skarfa sem höfðu stillt sér upp þegar sonur hans benti honum á örninn. Myndavélinni var snarlega snúið að konungi fuglanna sem sveif vængjum þöndum og hvarf loks sýnum yfir Hegranesið. Ernir eru ekki algengir í Skagafirði en láta þó sjá sig reglulega. Líklega er um geldfugla að ræða

 

Á Vísindavefnum segir að haförninn verpi einungis á vestanverðu landinu og er hann algengastur við Breiðafjörð. Nokkur pör verpa þó við norðanverðan Faxaflóa og fyrir margt löngu verpti örn í Þórðarhöfða. Honum hefur líklega verið komið fyrir kattarnef af mannavöldum en þeir voru ekki vinsælir hjá bændum á Íslandi.skarfur

Fuglafræðingar telja að 42 pör séu nú hér á landi og er heildarfjöldinn talinn vera um 150 fuglar að hausti. Til þess að varpárangur verði góður þarf veðurfar að vera hagstætt fyrir örninn, sérstaklega í apríl og maí. Landeigendur þurfa einnig að sýna erninum tillitsemi en því miður virðist hafa borið á því að menn hafi visvítandi spillt fyrir erninum á undanförnum áratugum sem veldur því að varpárangur hefur verið afar slakur á sumum svæðum ár eftir ár. Það virðist því sem hið rótgróna arnarhatur meðal æðarræktarbænda sé enn við lýði.

Fleiri fréttir