Hagleikssmiðja opnar á Króknum

Síðastliðinn föstudag var opnuð svokölluð Hagleikssmiðja í Gestastofu Sútarans á Sauðárkróki þar sem hægt verður að fræðast um sögu sútunar á Íslandi. Hagleikssmiðjan var sett á laggirnar í samstarfi með Nýsköpunarmiðstöð Íslands að kanadískri fyrirmynd sem kallast Economuseum.

Hagleikssmiðjunni er ætlað að varðveita sögu og gamalt handverk sem tengjast sútun og verkun skinna og gera það með þeim hætti að það verði lifandi og sjálfbært og aðgengilegt almenningi. Hagleikssmiðja Gestastofu Sútarans er önnur hagleikssmiðja sem sett er upp á landinu en sú fyrsta, Arfleifð á Djúpavogi kom nokkuð við sögu nú þar sem gengilbeinur sýndu glæsilegar flíkur frá þeim um leið og þær buðu gestum upp á léttar veitingar í tilefni dagsins.

Fleiri fréttir