Hagræðingartillögur vegna Varmahllíðarskóla

Á fundi samstarfsnefndar Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Akrahrepps sem haldinn var s.l. föstudag voru kynnt  drög að fjárhagsáætlun Íþróttamiðstövarinnar í Varmahlíð.

Nefndin bendir á að forsendur fjárhagsáætlunar sem lögð var fyrir félags- og tómstundanefnd standist ekki, þar sem breytingar í reksti Íþróttamiðstöðvarinnar í Varmahlíð verði ekki gerðar á miðju skólaári. 

Nefndin telur einnig að tekjuáætlun skólastjóra Varmahlíðarskóla sé varfærin og óskar nefndin eftir frekari upplýsingum frá íþróttafulltrúa um mögulega hagræðingu í rekstri.

Þá var rætt um skólaakstur og möguleika á samnýtingu á bifreiðum í út-Blönduhlíð og út í Hofsstaðapláss og var óskað eftir því að fræðslustjóri skoði málið með tilliti til hagræðingar.

Nefndin samþykkti að húsaleiga íbúða við Norðurbrún og Laugarveg, sem tilheyra rekstri Varmahlíðarskóla, verði hækkuð frá og með 1. ágúst 2011 og húsaleigan verði færð til samræmis við almennan leigumarkað á svæðinu.

Fleiri fréttir