Háhraða 4G samband á Króknum

Farsímafyrirtækið Nova bíður nú upp á 4G samband á Sauðárkróki.
Farsímafyrirtækið Nova bíður nú upp á 4G samband á Sauðárkróki.

Símafyrirtækið Nova hefur nú sett upp 4G sendi og langdrægt 3G sem mun efla samband á Sauðárkróki. „Við hlökkum til að geta þjónustað viðskiptavini okkar í þessum landshluta enn betur og bjóðum alla velkomna í háhraða 4G net,“ segir í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.

Nova er annað stærsta farsímafyrirtækið á Íslandi og var fyrst íslenskra símafyrirtækja til þess að bjóða 4G/LTE þjónustu. 4G/3G þjónusta Nova nær til 95% landsmanna en sífellt er unnið að því að efla og þétta kerfið enn frekar, segir enn fremur í fréttatilkynningunni.

Fleiri fréttir