Háhyrningar á Hrútafirði
Í gær um kl 11 að morgni þegar Þorsteinn Broddason á Sauðárkróki var á ferð um Hrútafjörðinn sá hann hvar þrír háhyrningar voru á ferð úti á firðinum og náði að smella af þeim myndum rétt við Reyki. Þorsteinn sendi Feyki þessa skemmtilegu mynd.
Samkvæmt Wikipedia eru háhyrningar útbreiddir á öllum heimshöfum, á heimskautasvæðum sem og á hitabeltissvæðum. Þeir eru þó mun algengari á landgrunnssvæðum fjarri hitabeltinu. Að sumrinu sjást háhyrningar oft nærri landi, inni á fjörðum og flóum, en yfir veturinn halda þeir sig á meira dýpi. Það er þó mikill munur á farmynstri háhyrninga og ekki hægt að sjá eitt einhlítt munstur.
Háhyrningar eru algengir við Íslandsstrendur, á sumrin og haustin einna helst á síldarmiðum undan Austfjörðum, Suður- og Vesturlandi en þeir sjást allt umhverfis landið. Þeir elta oft síldar- og loðnuvöður inn í firði. Háhyrningar þurfa fæðu, fisk eða kjöt, sem samsvarar frá 2,5 til 5% af líkamsþyngd þeirra daglega og dýr sem er um sjö tonn þarf frá 175 til 350 kg af fæðu á dag. Háhyrningar eru mjög hraðsyntir og árið 1958 mældist eitt dýr synda 55,5 km/klst. í Kyrrahafi.
Sjá nánar á Wikipedia.