Halla Rut skipuð í embætti sóknarprests Hofsóss- og Hólaprestakalls
Biskup Íslands hefur ákveðið að skipa mag. theol. Höllu Rut Stefánsdóttur í embætti sóknarprests í Hofsóss- og Hólaprestakalli Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmi.
Halla Rut er frá Varmahlíð, dóttir þeirra Stefáns R. Gíslasonar tónlistarmanns og Margrétar Guðbrandsdóttur skólaritara.
Frestur til að sækja um embættið rann út 18. júní sl. Alls sóttu sjö umsækjendur um embættið. Embættið veitist frá 1. ágúst nk.