Handverkshátíðin opnar í dag
Hin árlega Handverkshátíð í Eyjafjarðasveit opnar á hádegi í dag í 23. sinn. Hátíðin verður eins og áður í Hrafnagilsskóla sem er 10 km sunnan við Akureyri og opið verður frá kl. 12:00 til 19:00 frá fimmtudegi til laugardags. Á sunnudaginn verður opið frá 12:00 til 18:00. Skipuleggjendur hátíðarinnar lofa einni glæsilegustu sýningu hingað til, en alls verða 94 sýnendur alla helgina. Þar að auki taka 55 aðilar þátt á handverks- og matarmarkaði.
Handverksmarkaðurinn fer fram fimmtudag, föstudag og sunnudag en á laugardeginum verður boðið upp á matarmarkað úr Eyjafjarðarsveit. Á þeim markaði verður margt spennandi í boði svo sem kornhænuegg og broddur. Á handverksmarkaðinum eru um 100 hönnuðir og handverksfólk sem selja fatnað, keramik, snyrtivörur, textílvörur og skart sem oftar en ekki er unnið úr rammíslensku hráefni. Á útisvæðinu er hægt að bragða á og kaupa góðgæti frá Beint frá býli auk fjölda annarra aðila. Ýmsar uppákomur eru í boði alla dagana s.s. tískusýningar, markaður, sýning á gömlum traktorum og miðaldabúðir.
/fréttatilkynning