Handverksnámskeið á Laugarbakka
Fyrirhugað er að halda handverksnámskeið í Grettisbóli á Laugarbakka þar sem kenndar verða grunnaðferðir víkingakeðjugerðar og spjaldvefnaðar en einnig að verka horn og bein og smíða úr þeim.
Skráning fer fram hjá Unni í Bardúsu s: 869-6327 og eru námskeiðin eftirfarandi:
Víkingakeðjugerð 2-3 maí
- Kenndar verða grunnaðferðir við gerð víkingakeðja.
- Kennt verður 19:30-22:30 báða daga. (6 klst.)
- Kennari: Ásdís Birgisdóttir frá Textílsetri Íslands
- 6-7 Þátttakendur
- Verð: 8.000.- Efni ekki innifalið
- Vinsamlegast skráið ykkur fyrir sunnudaginn 1. maí
Spjaldvefnaður 7-8 maí
- Kennt verður frá kl 10-16 báða daga. (12 klst)
- Kenndar verða grunnaðferðir við spjaldvefnað en hann
- hefur verið stundaður allt frá landnámi til dagsins í dag.
- Kennari: Philippe Ricart
- 6-8 þátttakendur
- Verð: 13.500,- efni innifalið
- Vinsamlegast skráið ykkur fyrir mánudaginn 2. maí
Horn og bein 11-12 júní
- Kennt verður frá kl 10-16 báða daga. (12 klst)
- Kennt verður að verka horn og bein og smíða úr þeim.
- Jafnframt verður kennt að pressa efnin.
- Kennari: Þórey S. Jónsdóttir
- 6-8 þátttakendur
- Verð: 8.000.- Efni innifalið en einnig er hægt að koma með efni sjálfur.
- Vinsamlegast skráið ykkur fyrir 31. maí
Námskeiðin eru styrkt af Menningarráði Norðurlands vestra.
Kennsla fer fram í Grettisbóli Laugarbakka
Ath námskeiðsstyrki stéttarfélaga!