Hanna Dóra ráðin skólastjóri Varmahlíðarskóla

Hanna Dóra Björnsdóttir hefur verið ráðin í stöðu skólastjóra Varmahlíðarskóla en um stöðuna bárust sex umsóknir. Greint er frá þessu á vef Svf. Skagafjarðar.

Hanna Dóra er grunnskólakennari og með meistarapróf í uppeldis- og sálfræðiráðgjöf auk náms í menntunarfræðum með áherslu á stjórnun menntastofnana. Hún hefur auk þess víðtæka reynslu úr skólastarfi og sem uppeldis- og sálfræðiráðgjafi.

 

 

Fleiri fréttir