Nýr kafli í sögu Hóla | 26 nemendur brautskráðir frá HÍ á Hólum

Brautskráningarnemar og fulltrúar skólans. MYND AÐSEND
Brautskráningarnemar og fulltrúar skólans. MYND AÐSEND
Það var hátíðleg stund á Hólum í Hjaltadal föstudaginn 9. október sl. þegar 26 nemendur luku námi frá Háskóla Íslands á Hólum. Dagurinn var sérstakur bæði fyrir nemendur og skólann, því þetta var fyrsti hópurinn sem útskrifaðist undir nýju nafni skólans og fyrsti nemendahópurinn sem útskrifast frá háskólasamstæðu Háskóla Íslands.
 
Á Hólum hefur skólastarf verið stundað í meira en níu aldir og staðurinn á sér ríka sögu sem mennta- og fræðasetur. Brautskráningin 9. október markaði því nýjan kafla í þessari löngu sögu skólans. Eins og flestum er kunnugt er Háskólinn á Hólum nú aðildarháskóli í háskólasamstæðu Háskóla Íslands og ber nafnið Háskóli Íslands á Hólum.
 
Við athöfnina komu saman útskriftarnemar, aðstandendur og starfsfólk til að fagna áfanganum og þeim tækifærum sem bíða þeirra að námi loknu. Í ávarpi sínu lagði Hólmfríður Sveinsdóttir, forseti HÍ á Hólum, áherslu á að útskriftarnemarnir ættu sérstakan sess í sögu skólans. Þau væru fyrsti hópurinn sem útskrifaðist frá Háskóla Íslands á Hólum og því hluti af mikilvægum breytingum í skólastarfinu.
 
Hún minnti jafnframt á að þótt margt hefði breyst stæði mikilvægt hlutverk skólans óhaggað. Háskóli Íslands á Hólum myndi áfram leggja áherslu á sérhæft nám og rannsóknir og miðla þekkingu sem nýtist samfélagi og atvinnulífi, ekki síst á landsbyggðinni.

Áfanga fagnað og horft til framtíðar

Sautján nemendur luku diplómanámi í fiskeldisfræði, ferðamálafræði og viðburðastjórnun. Í hópi útskriftarnemendanna voru einnig níu nemendur í alþjóðlega meistaranáminu MAR-BIO, sem höfðu stundað hluta náms síns á Hólum. Þau höfðu áður lokið námi við samstarfsháskóla í Svíþjóð og Noregi en luku einnig námi sínu við Háskóla Íslands á Hólum.
 
Hekla Sól Hafsteinsdóttir, sem lauk diplómanámi í viðburðastjórnun, hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur. Hún flutti jafnframt ávarp fyrir hönd nemenda og deildi þannig með viðstöddum sjónarhorni útskriftarnema á þennan merka dag.
 
Háskóli Íslands á Hólum óskar öllum útskriftarnemendum innilega til hamingju með áfangann. Háskóli Íslands á Hólum óskar Heklu Sól jafnframt inntil hamingju með framangreinda viðurkenningu og góðan námsárangur.

Hólastaður horfir fram á veginn

Í ræðu forsetans kom fram að saga skólastarfs á Hólum nær aftur til ársins 1106. Sú langa hefð er mikilvægur hluti af sérstöðu staðarins, en framtíðin byggir jafnframt á þekkingu, rannsóknum og fólkinu sem stundar nám og störf þar í dag.
 
Brautskráningin var því bæði persónulegur áfangi fyrir nemendurna og söguleg stund fyrir Hóla og nærsamfélagið. Fyrsti útskriftarhópur Háskóla Íslands á Hólum heldur nú út í næsta kafla lífsins með þekkingu og reynslu úr námi sínu og mun ávallt eiga sinn stað í sögu skólans.
/fréttatilkynning

 

Fleiri fréttir