Hard wok kaffi opnar á Króknum
Að Aðalgötu 8 á Sauðárkróki er að færast líf að nýju þar sem Árni Björn Björnsson og Ragnheiður Ásta Jóhannsdóttir hafa opnað veitingastað sem fær það skemmtilega heiti Hard wok café.
Síðasta laugardag sagðist Árni hafa prófað að „pöbbast“ og var fullt út úr dyrum og síðan þá hefur verið opið fyrir matsölu samfara prófunum á tækjum og tólum í eldhúsi. Að sögn Árna Björns hefur hin formlega opnun ekki farið fram enn þar sem aðeins vantar upp á að hann geti framreitt allt sem er í boði á matseðlinum. Opið er í Hard wok café í hádeginu og frá klukkan 18:00 og fram á kvöld en í sumar mun tíminn eitthvað lengjast að sögn Árna.