Hárfínt Hollywood-dútl í desember
Það er löngu orðið lýðnum ljóst að Fröken Fabjúlöss dregst að glitri, glamúr og glimmerheitum jafn heiftarlega og Kim Kardashian dregst að sviðsljósinu. Í einhvern tíma núna höfum við hérna í glamúrhorni Fabjúlössmans verið gjörsamlega að missa okkur úr aðdáun yfir glimmerlokkum sem við rákum augun í, í hárinu á góðvinkonu okkar Beyonce um daginn. Óttalega smart, stílhreint, ó svo glitrandi og algjörlega það funheitasta í henni Hollywood þessa dagana!
Litla glamúrhjartað í Fröken Fabjúlöss fór því heldur betur á dúndrandi dansiball þegar þær gleðifregnir bárust að ekki væri trendið bara lent á klakanum, heldur væri hin alskagfirska og yfirburða snjalla hárgreiðslukona Auður Björk Birgisdóttir búin að nema fræðin og tilbúin að gefa höfði Frk. Fab glimmeryfirhalningu!
Ekki tóku herlegheitin langann tíma! 20 mínútum eftir að Frökenin settist í stólinn hjá Auði var hár hennar undurglitrandi og glamúröss! Það besta við þetta allt saman er að þó hárið sé þvegið, sléttað, krullað og blásið þá sitja glitrandi lokkarnir sem fastast í sirka 2-3 vikur! Um gyllt, silfrað eða bleikt var að velja og kaus Frökenin að vera gyllt þessi jólin. Fröken Fabjúlöss getur því gengið hnarreist um með glitrandi, en jafnframt slétt hárið og verið jólalegri en áður hefur þekkst!
Auður Björk hefur fullann hug á því að glimmerlokka sem flestar píurnar á öllum aldri, og hefur því slegist í lið við hana Siggu í Purple Corner, og munu þær stöllur vera með opið hús í gömlu Ísold helgina fyrir jól (22 og 23 des) og útvega Skagfirskum kvensum skart, hvort heldur sem er í hárið eða á hálsinn!! Glimmerlokkarnir eru hræbillegir, stakur lokkur á 600 krónur og 10 lokkar á 3500 krónur... Og fyrst við erum byrjaðar að básúna verð hérna í heimshorni Fabjúlössmans finnst okkur réttast að taka það fram að skartið hjá henni Siggu okkar er allt á 2000 krónur eða undir! Margt dónalegra hefur heyrst á öldum ljósvakans og er þessi prís vel til þess fallinn að stökkva á! Ef glamúrpíur Íslands komast ekki á ofangreindum tíma og vilja heyra í Auði glamúrdrottningu með málamiðlanir má alveg slá á þráðinn til hennar í síma 867-2216.
Fröken Fabjúlöss er svona líka argandi ánægð með nýju glitrandi lokkana sína og yfir sig hamingjusöm með það hvað konur Skagafjarðar eru fashion forward!
Auka innslag og hugleiðing frá Fröken Fabjúlöss: Hversu ótrúlega fallega krúttlegir væru bleikir svona glimmerlokkar í litlu fallegu jólastelpunum??