Háskólalestin á Sauðárkróki 17. og 18. maí

Háskólalest Háskóla Íslands rennur af stað í næstu viku og kemur við á þremur áfangastöðum á landsbyggðinni í maímánuði. Þetta er þriðja árið sem lestin fer um landið með fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa og fyrsti áfangastaðurinn að þessu sinni er Vesturbyggð.

Háskólalestinni var fyrst hleypt af stokkunum á aldarafmæli Háskóla Íslands árið 2011. Þá var tímamótunum fagnað með viðamikilli vísindadagskrá á níu stöðum á landinu og voru viðtökurnar með eindæmum góðar. Lestin heimsótti fjóra staði í fyrra og lagði sem fyrr áherslu á lifandi vísindamiðlun til ungs fólks og litríka dagskrá fyrir alla fjölskylduna.

Áfangastaðirnir í maímánuði eru Vesturbyggð, Sauðárkrókur og Fjarðabyggð og nemur lestin staðar í tvo daga á hverjum stað. Fyrri daginn verður boðið upp á valin námskeið í Háskóla unga fólksins fyrir nemendur í eldri bekkjum grunnskóla og þann seinni er blásið til vísindaveislu fyrir alla fjölskylduna í samstafi við heimamenn.

Dagskrá Háskólalestarinnar er öllum opin, aðgangur ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.

Áætlun Háskólalestarinnar vorið 2013:

  • 10. og 11. maí – Vesturbyggð
  • 17. og 18. maí – Sauðárkrókur
  • 24. og 25. maí – Fjarðabyggð

Hægt er að fylgjast með Háskólalestinni á vef hennar og á Facebook Frá miðstjórnarfundi.

Fleiri fréttir