Hátíðardagskrá á alþjóðadegi kvenna
Söngskóli Alexöndru. mun á morgun þann 8. mars standa fyrir hátíðarsöngdagskrá í tilefni alþjóðadags kvenna. Dagskráin hefst klukkan 18:00 en fram koma söngnemendur Alexöndru auk þess sem stúlknakórinn syngur. Þá mun Alexandra sjálf stíga á svið. Kynnir á tónleikunum verður María Ósk Steingrímsdóttir.
Á tónleikunum verður valið besta atriðið en flytjandi þess mun taka þátt í Nótunni sem fram fer í Söngskólanum á Eskifirði þann 19. mars. Dómarar verða þau; Jóhann Már Jóhannsson, Ásdís Guðmundsdóttir, Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir og Sigurdríf Jónatansdóttir.
Aðgangur á tónleikana er ókeypis og eru allir velkomnir en komur og kaffi verða seld á staðnum.