Hátíðardagskrá í tilefni Verkalýðsdagsins

Stéttarfélögin í Skagafirði standa fyrir hátíðardagskrá í dag, Verkalýðsdaginn 1. maí, og hefst hún kl. 15:00 í sal Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Ræðumaður verður Unnar Rafn Ingvarsson skjalavörður.

Að venju verður boðið upp á glæsilegt kaffihlaðborð og að þessu sinni verða skemmtiatriðin í höndum 10. bekkjar Varmahlíðarskóla og Kórs eldri borgara, auk þess sem Geirmundur Valtýsson leikur fyrir veislugesti. „Félagsmenn eru hvattir til að mæta og gera sér glaðan dag,“ segir í auglýsingu frá stéttarfélögunum.

Fleiri fréttir