Hefur þig dreymt um að spila í 1. deildinni? Nú er sénsinn...
Leikmannahópur Tindastóls fyrir stórleikinn gegn Þór Akureyri á laugardaginn er ansi þunnskipaður þar sem aðeins 12 leikmenn eru til taks. Einhverjir eru þó tæpir í þeim hópi, tveir eru síðan í banni og nokkrir erlendu leikmannanna fengu leyfi til að yfirgefa stolta skútuna eftir að sætið í deildinni var tryggt.
Sú hugmynd kom upp hjá knattspyrnudeild Tindastóls að selja aðgang að varamannabekk Stólanna. Menn þyrftu að vera skráðir í Tindastól og á leikdegi fengju þeir morgunmat með leikmönnum og fylgja þeim eftir í búning eins og hverjir aðrir leikmenn. Fyrst um sinn væru þeir á bekknum en sú staða gæti komið upp að menn þyrftu að skella sér inn á völlinn og jafnvel í fremstu víglínu.
Áhugasamir geta haft samband við Stefán Arnar hjá meistaraflokksráði Tindastóls.