Hefurðu áhuga á að dvelja í listamiðstöð í Þýskalandi?

Nes listamiðstöð á Skagaströnd auglýsir eftir íslenskum listamanni sem hefur áhuga á mánaðardvöl í Kunstlerhaus Lukas listamiðstöðinni í Ahrenshoop í Þýskalandi. Samkvæmt fréttatilkynningu frá Nes listamiðstöð eru mögulegir dvalartímar mars, júní eða september 2013.

Samkvæmt  samstarfssamningi Nes listamiðstöðvar og Kunstlerhaus Lukas þá er það Nes listamiðstöð sem velur listamanninn úr innsendum umsóknum. Dvalargjald er frítt fyrir viðkomandi listamann en hann verður sjálfur að kosta ferðir og uppihald.

Umsækjendur geta verið frá hvaða listgrein sem er, þó er áhersla lögð á  sjónlist; t.d. gjörningar, fjölmiðlun eða nútímalistsköpun.

Umsókn sendist í einu skjali á PDF formi;

  • ferilskrá og markmið með listsköpun
  • þeir þættir sem áhersla verður lögð á meðan á dvölinni í Þýskalandi stendur, netslóð eða slóð á þau verk sem viðkomandi er með í gangi
  • 4 jpeg myndir af listaverkum umsækjanda

Umsóknir sendist á nes@neslist.is í síðasta lagi föstudaginn 1. febrúar nk., kl. 17:00.

Fleiri fréttir