Heilbrigðisstofnunin fær loftdýnur að gjöf
Lionsklúbburinn Björk færði Heilbrigðisstofnuninni Sauðárkróki tvær loftdýnur að gjöf þann 14. mars sl. Dýnurnar henta vel fyrir þá sem eru í vissri uppí meðalhættu að fá þrýstingssár og til meðferðar á sárum á stigi 1-2.
Aðal fjáröflun klúbbsins er sala á plastpokum. Gjöfina afhentu þær Andrea Dögg Björnsdóttir formaður, Anna Pála Þorsteinsdóttir ritari og Margrét Guðmundsdóttir gjaldkeri. Gjöfinni veittu móttöku Herdís Klausen framkvæmdastjóri hjúkrunar og Guðrún H. Guðmundsdóttir deildarstjóri .
Heilbrigðisstofnunin þakkar hjartanlega þessa höfðinglegu gjöf sem mun nýtast vel.