Heillandi hekl!
Frökenin er ofsalega mikil áhugamanneskja um allt sem hægt er að búa til, og elskar að vera að dunda sér við eitthvað og horfa á hlutina verða til í höndunum á sér! Prjónaskapur hefur hingað til svalað þessari þörf hennar, en hekl er samt eitthvað sem hefur alltaf heillað hana og seinni árin hefur það virkilega farið í taugarnar á henni að kunna það ekki. Þar sem Frökenin eyðir nú oftast ekki miklum tíma í að væla yfir hlutunum heldur fer í það að kippa hlutunum í lag lagðist hún yfir heklkennslu á youtube með garn og heklunál að vopni, og eftir um það bil 20 mínútur var hún útskrifaður heklbyrjandi!
Það sem heillaði Fab strax við þessa iðju er hversu óhugnalega einfalt þetta í raun er... Það er alltaf bara ein lykkja í gangi og þar af leiðandi svo ótrúlega einfalt að rekja upp og laga og breyta og bæta og möguleikarnir eru svo óendanlegir :)
En reyndar er ein ákveðin undirliggjandi ástæða fyrir hinu nýtilkomna heklæði dívunnar: Hekluð hálsmen! Fab hefur legið yfir þeim í nokkurn tíma á netinu, og er gjörsamlega heilluð af möguleikunum sem felast í hekluðum skartgripum! Hversu dásamlegt væri það að eiga á lager heklaða skartgripi og geta bara gripið til þeirra þegar þörf er á tækifærisgjöf- Fallegt, einfalt og beint frá hjartanu!
Fröken Fabjúlöss er dottin á bólakaf ofan í heklhannyrðarnar og mælir algjörlega svo um munar með þessu tómstundagamani! Þetta róar hugann, er bússt fyrir sköpunargáfuna og ótrúlega gaman! Hversu frábært er að finna eitthvað sem sameinar þetta þrennt??
Við skulum að endingu kíkja á nokkra heklaða skartgripi sem Frökenin hefur verið að viða að sér á öldum internetsins. Fab vill þó taka það sérstaklega fram að ekkert af þessum skartgripum hérna fyrir neðan eru eftir hana, en vonandi verður bót á því í náinni framtíð!