Heilsufræðsla á Hofsósi
Í gær flutti Sonja Sif Jóhannsdóttir heilsufyrirlestra fyrir íbúa á Hofsósi og nágrenni. Nemendur í Grunnskólanum austan Vatna á Hofsósi fengu fyrirlestur um morguninn en um kvöldið var opin fyrirlestur fyrir almenning.
Sonja Sif var þarna á heimavelli, enda uppalin á Hofi á Höfðaströnd, þar sem barnæskan einkenndist af hestamennsku og íþróttum. Í dag er hún master í íþrótta- og heilsufræðum og starfar sem forvarnarfulltrúi á útgerðarsviði hjá TM,
Það var því við hæfi að spyrja Sonju Sif hvað á daga hennar hefði drifið síðan hún yfirgaf Grunnskólann á Hofsósi?
-Eftir stúdentinn fór ég í sagnfræði í HÍ en uppgvötaði eftir 30 einingar að íþróttakennaranámið ætti betur við mig. Þá fór ég á Laugarvatn og kláraði íþróttakennarann og bætti svo við mig B.s. gráðu í íþróttafræðum. Eftir það kenndi ég átta ár í MA. Fór síðan í mastersnám í íþrótta- og heilsufræðum þar sem ég gerði mastersritgerð um heilsu sjómanna. Í framhaldi af því fékk ég starf hjá TM og hef verið þar í fimm ár. Starfið mitt felst í því að heilsuvæða sjómen. Auk þess hef ég kennt lífeðlisfræði í hlutastarfi, séð um lyfjaeftirlit ÍSÍ og starfað sem einkaþjálfari. Aðalstarfið er samt að vera tveggja barna móðir, sagði Sonja.
Í fyrirlestri sínum fjallaði Sonja einkum um vaxandi heilsubresti í samfélagi okkar. Hún vakti athygli á mikilvægi hreyfingar, matarræðis og jákvæðrar hugsunar. Markmiðið var að vekja áheyrendur til umhugsunar um mikilvægi þess að setja heilsuna í fyrsta sæti og gefa sér tíma til að borða hollt og hreyfa sig reglulega. Þetta þyrfti allt að vera hluti af lífstílnum en ekki í formi átaks.
Ágætis mæting var á fyrirlesturinn, en skyldi hann verða upphafið að heilsuvakningu á staðnum?
-Ég veit það reyndar ekki, ég ákvað bara að koma með þennan fyrirlestur þar sem mamma var svo lengi búin að biðja mig um það. En það er aldrei að vita nema maður geti vakið upp smá áhuga, sagði Sonja Sif Jóhannsdóttir.