Heimagert og himneskt!

Þó svo að blási köldu í augnablikinu er Fröken Fabjúlöss hvorki búin að gleyma veðurblíðunni sem hefur hrjáð okkur undanfarið, né fréttunum um tilvonandi brakandi blíðu næstu vikur!

Þegar fréttir af svona veðurofsa (ofsi náttúrulega gengur í báðar áttir sjáiði!) nær til eyrna Frk. Fab fer heilinn af stað! Þegar mannskepnunni hitnar í hamsi er alltaf gott að eiga frostpinna til á lager, og ekki bætist beint á leiðindin ef frostpinninn er heimagerður og vitneskjan um skort á rotvarnar og litarefnum heldur samviskubitinu í skefjum!

Þar sem Fröken Fabjúlöss þjáist af viðvarandi löngun til að gera lífið skemmtilegra og fegurra ákvað hún að reyna að finna hina fullkomnu og um leið einföldu frostpinnauppskrift og fann eina sem er svo skemmtilega gerð að frostpinnameistarinn er með það í hendi sér hvaða bragð er af pinnunum!

Heimagerðir Frostpinnar Fröken Fabjúlöss*

250 gr ávextir, frosnir eða ferskir- Hérna má láta hugmyndaflugið ráða: bláber, jarðarber, blandaðir ávextir... Bara hvað dettur þér í hug??
1 bolli rjómi (mjólk, skyr eða jafnvel skyrdrykkur ef þú ert í kaloríukreppu og sojamjólk eða rísmjólk ef mjólkuróþol herjar á landann)
1/3 bolli sykur
1/4 bolli vatn

Henda þessu öllu saman í blandara og látið maukast vel saman! Smella svo gomseríinu í frostpinnabakka (fást í Skaffó á 800 krónur sirka) og inn í frysti. Þessi uppskrift ætti að nægja fyrir 6 pinna.

Svona frostpinnabakkar eru ótrúlega sniðugir, en ef manni langar að vera smá sniðugur, þá má hella gomseríinu í litlar jógúrtdósir, stinga íspinnaspýtu úr keyptum íspinna ofan í (hægt að skorða hana af með því að setja fyrst álpappír ofan á dósina og stinga svo spítunni niður í gegnum hann, þá ætti spýtan að haldast þar sem hún á að vera) og frysta þannig.

Vona að þetta verði einhverjum til ánægju og yndisauka í yfirvofandi blíðviðri :)

 *Frk. Fab áskilur sér rétt til að skíra uppskriftina í höfuðið á sér þó hún hafi á engann hátt komið nálægt gerð hennar, það er bara svo Fabjúlöss að eiga frostpinna skírðann í höfuðið á sér :)

Fleiri fréttir