Helena þjálfar Míkróbolta stúlkna
Helena Þórdís Svavarsdóttir hefur tekið við þjálfun Míkróbolta stúlkna 1. - 2. bekk hjá Tindastóli og hefur störf í dag þriðjudag. Tekur hún við starfinu af Halldóri Halldórssyni, sem verður áfram með strákana í þessum flokki.
Helena Þórdís er leikmaður stúlknaflokks Tindastóls og á sínu fyrsta ári í FNV. Hún stýrði stúlkunum á Króksamótinu um daginn af miklum myndarbrag, eins og segir á heimasíðu Tindastóls.
Æfingatímarnir verða óbreyttir og er búið að uppfæra upplýsingar um þjálfara í æfingatöflu til samræmis við þessar breytingar.