Helga Margrét bætti Íslandsmetið á móti í Tallin

Helga Margrét Þorsteinsdóttir sjöþrautarkona úr Ármanni bætti Íslandsmet sitt er hún keppti í fimmtarþraut innanhúss á alþjóðlegu móti í Tallin í Eistlandi, dagana 3. og 4. febrúar sl. Fyrra met hennar var 4.205 stig frá árinu 2010, en hún bætti met sitt um 93 stig og hlaut samtals 4.298 stig í keppninni.

Helga Margrét varð í 2. sæti í mótinu, á eftir Lauru Ikauniece frá Lettlandi sem hlaut 4.346 stig. Jafnframt kemur árangur Helgu, með 4.298 stig, henni í 11 sætið á heimslistanum og best á Norðurlöndunum, segir í fréttatilkynningu.

Heildarárangur Helgu Margrétar í fimmtarþrautinni var sem hér segir:

60 m grindahlaup - 9,03 sek. - 904 stig
Hástökk - 1,74 m. - 903 stig
Kúluvarp - 14,74 m. - 843 stig
Langstökk - 5,59 m. - 726 stig
800 m hlaup - 2:12,97 mín. - 922 stig

Úrslit frá mótinu er að finna á vef eistneska íþróttasambandsins, eða með því að smella hér.

 

Fleiri fréttir