Helga Margrét hætt keppni

Helga Margrét Þorsteinsdóttir sjöþrautarkona úr Ármanni er hætt keppni á Evrópumeistaramótinu fyrir 23 ára og yngri í Ostrava í Tékklandi. Í fjórðu grein þrautarinnar, 200m hlaupinu, meiddi hún sig í aftanverðu lærinu og varð að hætta keppni.

Helgu hafði gengið frekar illa í þremur fyrstu greinum þrautarinnar þar sem hún hljóp 100m grindahlaup á 14.76 sek, stökk 1.69m í hástökki og varpaði kúlunni 13.86m. Óvíst er hve alvarleg meiðslin eru en við fyrstu rannsókn virðist þetta ekki vera mjög alvarlegt.

Fleiri fréttir