Helga Margrét hefur lokið keppni í Kladno
Þorsteinsdóttir var rétt í þessu að klára sjöþrautina í Kladno í Tékklandi. Þrátt fyrir mjög erfiða þraut og misjafnt gengi þá hjó hún nærri Íslandsmeti sínu í greininni en hún náði á endanum í 5.863stig sem er aðeins 15 stigum frá hennar besta árangri.
Greinarnar:
- 100m grindahlaup 14.95sek
- Hástökk 1.77m persónulegt met
- Kúluvarp 13.68m
- 200m hlaup 26.05sek
- Langstökk 5.45m
- Spjótkast 50.84m persónulegt met
- 800m 2:11.26min persónulegt met
-Þetta var í sjálfu sér ótrúleg þraut. Helgu gekk mjög vel í þremur greinum og mjög illa í fjórum, segir Vésteinn Hafsteinsson þjálfari Helgu en í augnablikinu er verið að reikna allt út og heildarúrslit verður hægt að finna í kvöld á: www.iaaf.org og á www.desetiboj-kladno.cz
-Við skulum hafa það í huga að Helga er að stíga sín fyrstu spor í heimi afreksíþrótta og hefur miklar væntingar til sjálfs sín og sinnar framtíðar. Við sem stöndum á bakvið hana gerum okkur líka grein fyrir því að hér er um einstakt eintak að ræða þar sem hæfileikarnir eru hvílíkir líkamlega. Hún á þó töluvert í land með að geta stjórnað öllu þessu afli inn í réttar hreyfingar undir pressu. En framtíðin er hennar og hún mun taka þessa lífsreynslu sem hún varð fyrir um helgina með sér inn í næstu þraut, segir Vésteinn en það verður í Ostrava þar sem hún mun keppa á Evrópumeistaramóti unglinga undir 23 aldri eftir þrjár vikur.