Helga Margrét komin á fullt skrið
Helga Margrét Þorsteinsdóttir er nú að hefja sitt innanhússtímabil og hefur keppt í fimm greinum á tveimur mótum undanfarið. Á RIG sem haldið var í Reykjavík fyrir skömmu stökk hún 1.73m í hástökki sem var allt í lagi að mati Vésteins Hafsteinssonar þjálfara, en hún á best 1.77m. Helga bætti sig í 800m hlaupi, hljóp á 2.12,85mín sem er einkar góður árangur.
Í gær keppti Helga Margrét í Norrköping í Svíþjóð og í 60m grindahlaupi náði hún tímanum 8.92sek, en þar á hún best 8.69sek. Í kúluvarpi varpaði hún kúlunni 14.74m en hún á best 15.01m kast og stökk svo 5.68m í langstökki en þar er hennar besti árangur 5.92m.
-Helga er jákvæð og finnst hún vera á réttri leið eftir erfiðan seinni part sumarsins 2011 og miklar breytingar sem fylgdu í kjölfarið með flutningi hingað út, háskólanámi, nýjum áherslum í æfingum, nýjum þjálfara o.s.frv., segir Vésteinn.
Helga mun keppa í sinni fyrstu fimmtarþraut innanhúss um næstu helgi í Tallinn í Eistlandi og telur Vésteinn að möguleikinn sé stór á nýju meti.