Helga Margrét til Bandaríkjanna

Helga Margrét Þorsteinsdóttir úr Húnaþingi vestra sem nú æfir og keppir með íþróttafélaginu Ármanni hélt í gær til Bandaríkjanna en þar verður hún í æfingabúðum næsta mánuðinn við fyrsta flokks aðstæður í Chula Vista í útjaðri San Diego.

Með Helgu í ferðinni eru æfingafélagar hennar, Jolanda Keizer frá Hollandi og Carolina Klüft frá Svíþjóð, og Agne Bergvall þjálfari. Þá verður kastþjálfarinn Vésteinn Hafsteinsson með hluta af sínu liði við æfingar á sama stað.

Mbl.is greinir frá þessu og segir að Helga Margrét hafi undirbúið sig af miklum krafti fyrir komandi keppnistímabil og farið sex sinnum til Växjö í Svíþjóð í vetur í æfingabúðir. Hún kemur heim um miðjan maí og ef allt gengur að óskum mun hún keppa á sterkasta fjölþrautarmóti heims í Götzis í Austurríki í lok maí.

/Mbl.is

Fleiri fréttir