Helgihald um Hvítasunnu
Hátíðarmessur og fermingar einkenna helgihald á Norðurlandi vestra um Hvítasunnuna, líkt og venja er. Samkvæmt upplýsingum úr Sjónhorninu og Glugganum eru neðantaldar guðsþjónustur í Austur-Húnavatnssýslu og Skagafirði í dag.
Í Þingeyrarklausturkirkju var fermingarmessa í morgun þar sem eitt barn var fermt. Í Hólaneskirkju á er rétt í þessu að hefjast fermingarmessa þar sem fimm börn munu fermast.
Í morgun voru sjö börn fermd í Sauðárkrókskirkju og eitt barn borið til skírnar. Í Hofsóskirkju var einnig hátíðarmessa í morgun og þar var eitt fermingarbarn. Sömuleiðis var eitt barn fermst í Reykjakirkju í morgun. Í Hóladómkirkju verður hátíðarmessa kl 14 í dag og þar verða fermd tvö börn. Loks verður helgistund í Víðimýrarkirkju í kvöld þar sem kór kirkjunnar syngur við undirleik Stefáns R. Gíslasonar.
Feyki hefur ekki borist nýjasta tölublað Sjónaukans og hefur vefurinn því ekki upplýsingar um helgihald í Vestur-Húnavatnssýslu.