Héraðsmót UMSS í sundi 17. júní
Héraðsmót UMSS í sundi verður haldið 17. júní í sundlaug Sauðárkróks. Sundlaugin opnar kl. 10:00, upphitun hefst kl 10:10 og mótið hefst kl 10:30. Skilyrði er að keppendur sem keppa á mótinu séu með skráð lögheimili í Skagafirði og séu ekki skráðir undir öðru félagi. Skráningarfrestur er til miðnættis 4. júní og skráningar skulu sendar á netfangið sund@tindastoll.is.
Í skráningum þurfa að koma fram kennitölur og nöfn einstaklinga og nöfn liða og við hvaða keppnisgreinar skráningarnar eiga.
Keppt verður í eftirfarandi greinum bæði í kvenna- og karlaflokki, : opnir flokkar.
200 m fjórsund
100 m baksund
100 m flugsund
100 m bringusund
100 m skriðsund
4 x 50 m boðsund
500 m skriðsund: Kerlingin og Grettisbikarinn.
Fyrsta keppnin um Grettisbikararinn var háð árið 1940 og er þetta því sjötugasta og þriðja aldursár keppninnar. Í fyrra urðu Sigurjón Þórðarson og Ingunn Kristjánsdóttir sundkappar Skagafjarðar.
Í boðsundsveit keppa fjórir keppendur af sama kyni í hverju liði og þarf hver keppandi að synda 50m frjálst sund. Á mótinu í fyrra var stjórn sunddeildar hvött til að setja saman boðsundsveit og skorar nú á aðrar deildir Tindastóls og/eða fyrirtæki í Skagafirði til að setja saman boðsundsveit/ir.
Verðlaunaafhending fer fram á sundlaugarbakka og verðlaun fyrir flottasta búninginn/fylgihlutinn karla og kvenna.