Hestaleikfimi í Landanum
Landinn kom við á Hvammstanga í gær þar sem spjallað var við þær Kathrin Schmitt og Irina Kamp en þær kenna ungum krökkum hestaleikfimi.
Kathrin byrjaði að æfa hestaleikfimi þegar hún var 10 ára gömul. Hún byrjaði að keppa fljótlega eftir það og stundaði íþróttina þar til hún var 25 ára gömul. Nú er hún búsett í Hrútafirði þar sem hún kynntist Irinu sem hafði einnig stundað íþróttina í æsku og fengu þær þá hugmynd að hefja þar kennslu í íþróttagreininni. Þær hafa nú kennt hestaleikfimi í þrjú ár og um þessar mundir eru þær með 20 nemendur.
Hér má sjá myndskeiðið sem hefst við 22:54 mínútur.