Hestamannafélagið Neisti hélt félagsmót og úrtöku

Hér má sjá 5 efstu í Gæðingatölti hjá Neista. Mynd:neisti.net.
Hér má sjá 5 efstu í Gæðingatölti hjá Neista. Mynd:neisti.net.

Vel heppnað félagsmót og úrtaka Hestamannafélagsins Neista 2025. 

 Neisti starfar í A-Hún og er með ljómandi fínt keppnissvæði á Blönduósi. 

Mótið fór fram við frábærar aðstæður í blíðskaparveðri sunnudaginn 22. júní . Þátttaka var með ágætum enda þótt börn og unglingar hefðu gjarnan mátt vera fleiri. Skráningar voru 42 flestar í A og B flokk gæðinga. Félagsmenn í Neista eru cirka 250. Mótið var einnig úrtaka fyrir fjórðungsmót Vesturlands sem haldið verður í Borgarnesi um næstu mánaðarmót. Neisti mun senda 14 keppendur í Borgarnes. Um úrslitin á mótinu má lesa á: neisti.net. hmj

 

 

Fleiri fréttir