Hestar fyrir alla

http://thytur.123.is/
http://thytur.123.is/

Fyrirhugað er að halda reiðhallarsýningu Þyts, Hestar fyrir alla, föstudaginn 18. mars næstkomandi. Sýningin verður haldin í samstarfi æskulýðsnefndar Þytsog annarra félagsmanna og vonast nefndin auðvitað eftir góðum undirtektum félagsmanna. „Til að halda sýningu verðum við að hafa atriði og þess vegna leitum við til ykkar félagsmenn góðir, sem og annarra áhugasamra,“ segir á vef Hestamannafélagsins Þyts.

Spurt er: „Lumar þú á góðri hugmynd að atriði sem vantar að komast í framkvæmd? Er áhugi til að vera með til staðar en vantar félagsskapinn? Ertu með efnilegt hross sem þér langar að koma á framfæri? Og svona mætti lengi telja upp. Klárhross, Alhliðahross, Stóðhestar/merar, Ræktunarbú og önnur Kynbótahross velkomin sem og önnur þau atriði sem fólki dettur í hug. Allir velkomnir.“

Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í sýningunni eru hvattir til að hafa sambandi við Kollu eða Tótu fyrir 20. febrúar næstkomandi.

Kolla Grétarsd. S: 894-4966 /hellnafell@gmail.com Tóta s: 869-0353 / sigurbjorg.thorunn@gmail.com

Og þeir krakkar sem vilja vera með endilega verið í sambandi við Æskulýðsnefndina á thyturaeska@gmail.com

 

Fleiri fréttir