Hestasumarið mikla í Skagafirði
Búið er að dagsetja þau mót sem hið nýja hestamannafélag, Skagfirðingur, stendur fyrir í sumar. „Það er heilmikið í boði fyrir keppendur í sumar, enda er þetta hestasumarið mikla í Skagafirði. Landsmótsstemming ríkir svo sannarlega í firðinum,“ segir í fréttatilkynningu frá félaginu.
Mótin sem um ræðir eru eftirfarandi og verða þau öll nánar auglýst síðar.
7.maí verður haldið punktamót í hestaíþróttum á Sauðárkróki
þar verður keppt í helstu íþróttagreinum og einungis riðin forkeppni.
8.maí verður barna og unglingamót í hestaíþróttum á Sauðárkróki
þar verður bæði riðin forkeppni og úrslit.
Vormót Skagfirðings fyrir börn og unglinga.
Hið árlega vormót UMSS á Hólum verður á sínum stað.
Sem sagt verður opið WR (world ranking) mót helgina 20.til 22.maí
Úrtaka fyrir landsmótið á Hólum verður á Hólum dagana 11.og 12.júní
Þar verður riðin tvöföld forkeppni,sitt hvorn daginn.
Er þetta sameiginleg úrtaka Skagfirðings,Glæsis,Neista og Þyts.
Félagsmót Skagfirðings verður í ágúst, nánar auglýst síðar.