Heyrnarstöð á hjólum rennir við á Norðurlandi

Bifreið HTÍ er fullbúin heyrnarmælinga- og þjónustustöð, búin öllum þeim tækjum og verkfærum sem sérfræðingar HTÍ þurfa til greiningar og meðferðar heyrnarmeina. Ljósm./HTÍ
Bifreið HTÍ er fullbúin heyrnarmælinga- og þjónustustöð, búin öllum þeim tækjum og verkfærum sem sérfræðingar HTÍ þurfa til greiningar og meðferðar heyrnarmeina. Ljósm./HTÍ

Í síðustu viku tók Heyrnar- og talmeinastöð Íslands í notkun nýja sérútbúna bifreið, sem verður notuð til reglulegra ferða út á land svo færa megi þjónustu HTÍ nær notendum. Stöðin heimsækir Norðurland dagana 15.-18.september nk.

Heyrnastöðin verður á eftirtöldum stöðum sem hér segir:

  • BLÖNDUÓSI (v/Heilbrigðisstofnun) þriðjudag 15.sept kl 13-17
  • SAUÐÁRKRÓKI (við Heilbrigðisstofn. Sauðárhæðum) Miðvikudag 16.SEPTEMBER N.K. FRÁ KL 9-13
  • SIGLUFIRÐI (v/Heilbr.stofnun), Miðvikudag 16.SEPT kl 15:30-18:00
  • ÓLAFSFIRÐI (v/heilsugæslu), Fimmtudag 17.SEPT kl 9-12
  • DALVÍK (v/heilsugæslu), Fimmtudag 17.SEPT kl 14-18

 

Bætir aðgengi landsbyggðarfólks að þjónustu Heyrnar-og talmeinastöðvar

Bifreiðin gerir HTÍ kleift að auka þjónustu heyrnardeildar sinnar við viðskiptavini um land allt. Hún er fullbúin heyrnarmælinga- og þjónustustöð, búin öllum þeim tækjum og verkfærum sem sérfræðingar HTÍ þurfa til greiningar og meðferðar heyrnarmeina. Stefnt er að því að með nettengingum og fjarbúnaði í bílnum geti læknar og heyrnarfræðingar stofnunarinnar jafnvel sinnt skjólstæðingum frá höfuðstöðvum í Reykjavík í framtíðinni,“ segir í fréttatilkynningu frá Heyrna- og talmeinastöð Íslands.

Í tilkynningunni segir að Heilbrigðisráðherra, Kristján Þór Júlíusson, hafi verið fyrsti viðskiptavinur hinnar nýju færanlegu heyrnarþjónustustöðvar. Við vígslu þjónustubifreiðarinnar nefndi ráðherra, að það væri stefna stjórnvalda að bæta nærþjónustu miðlægra þjónustustofnana þegar kostur er og þessi nýja þjónusta HTÍ væri kærkomin nýjung og bætti aðgengi landsbyggðarfólks að þjónustu Heyrnar-og talmeinastöðvar verulega.

Einnig veitti Kristján Sverrisson, forstjóri HTÍ, upplýsingar um verkefnið og hlutverk HTÍ. Nefndi hann ýmis dæmi um hvernig bifreiðin getur aukið þjónustu við landsbyggðina. „Auk almennrar þjónustu við heyrnarskerta og heyrnartækjanotendur opnast nú möguleiki á að hægt verði að skima heyrn allra nýbura sem fæðast á landinu og það í nærumhverfi foreldra. Hingað til hefur náðst að skima heyrn velflestra barna sem fæðast á Landspítala og Sjúkrahúsi Akureyrar en öðrum foreldrum siðan verið stefnt til fundar við heyrnarfræðinga HTÍ á fáum stöðum á landinu. Með reglulegum ferðum um landið gefst okkur kostur á að ná til allra nýbura og án mikillar fyrirhafnar fyrir foreldra.“

Kristján nefndi einnig að í tengslum við ferðir stöðvarinnar verði aukið við fræðslustarf til almennings og umönnunarstétta eftir því sem kostur sé. „Þá vonumst við til að geta þjónustað aldrað vistfólk á dvalar-og elliheimilum um land allt mun betur en hingað til því heyrnarskerðing aldraðra er vangreind og vanmeðhöndluð. Góð heyrn bætir lífsgæði þess hóps verulega,“ sagði Kristján Sverrisson að lokum.

HTÍ hefur frá ársbyrjun starfrækt heyrnamóttöku á Sauðárkróki anna hvern föstudag frá kl. 12-16. Sú þjónusta mun áfram verða í boði. Næsti móttökudagur er föstudagurinn 2. október.

 

Fleiri fréttir