Hirða - FLOKKUM OG SKILUM
Aðstaða til að skila flokkuðum endurvinnanlegum úrgangi utan opnunartíma Hirðu á Hvammstanga, hefur verið bætt til muna. Kör sem staðið hafa fyrir utan Hirðu hafa verið fjarlægð og útbúnir hafa verið skápar innan girðingar fyrir stórsekki.
Utan á girðingunni þarf aðeins að opna lúgu til að skila flokkaða úrganginum. Á hverri og einni lúgu eru gagngóðar upplýsingar um þann úrgangsflokk sem við á. Aðkeyrslan að lúgunum verður malbikuð seinna í sumar. Úrgangsflokkarnir eru 7 og eru:
1. Blöð/tímarit
2. Fernur/sléttur pappi
3. Mjúkt plast
4. Hart plast
5. Bylgjupappi
6. Málmar
7. Gler/steinefni
Ef koma þarf með stærri farma af ofantöldum úrgangsefnunum, skal koma þeim til Hirðu á opnunartíma.
/hunathing.is
Myndir: hunathing.123.is