Hjalti Jónsson og Lára Sóley Jóhannsdóttir í Sauðárkrókskirkju
feykir.is
Skagafjörður, Listir og menning
25.03.2015
kl. 08.43
Sauðárkrókskirkja býður til tónleika að kvöldi skírdags en þá ætla Hjalti Jónsson og Lára Sóley Jóhannsdóttir að gleðja við tónleikagesti með söng og hljóðfæraleik. Hjalti og Lára koma frá Akureyri og hafa komið fram saman yfir 500 sinnum á síðustu 8 árum. Þau gáfu nýlega út sína fyrstu plötu.
„Í hléi verður minnst atburða skírdagskvölds og boðið til kvöldmáltíðar, þar sem brauð frá Sauðárkróksbakaríi verður brotið og bergt á vínberjum,“ segir á facebook-síðu viðburðarins.
Enginn aðgangseyrir og allir velkomnir!