Hlaut 24 mánaða dóm vegna líkamsárásar á Hofsósi

Ungur karlmaður hlaut 24 mánaða dóm vegna líkamsárásar á tjaldsvæðinu á Hofsósi. Myndin er frá Hofsósi en tengist ekki efni fréttarinnar. Mynd: KSE
Ungur karlmaður hlaut 24 mánaða dóm vegna líkamsárásar á tjaldsvæðinu á Hofsósi. Myndin er frá Hofsósi en tengist ekki efni fréttarinnar. Mynd: KSE

Héraðsdómur Norðurlands vestra dæmdi í mars sl. karlmann í 24 mánaða fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Fram kemur í vefnum mbl.is í dag að mistök hafi orðið til þess að málið dróst í sex mánuði hjá lögreglunni á Norðurlandi vestra.

Hinn dæmdi var tvítugur þegar brotin voru framin. Hann þarf að sitja inni í þrjár mánuði fyrir brot sitt þar sem 21 mánuður af dómnum var skilorðsbundinn. Hlaut þolandinn ýmsa áverka við árásina og hótaði árásarmaðurinn honum lífláti ef atvikið yrði kært til lögreglu.

Árásin átti sér stað á tjaldstæðinu á Hofsósi í júní árið 2014. Sló hinn dæmdi fórnarlambið með krepptum hnefa í andlitið, eitt skipti í magann og sparkaði í höfuð fórnarlambsins sem lá á jörðinni.

Málið var tilkynnt til lögreglunnar á Sauðárkróki að morgni 22. Júní árið 2014 en þar kom fram að þrír til fjórir hefði ráðist að einum á tjaldsvæði. Tveimur dögum síðar lagði þolandi fram kæru. Á tímabilinu 3. Júlí til 24. September voru teknar lögregluskýrslur af ákærða og vitnum.

Við aðalmeðferð málsins sagði sá sem ákærður var í málinu að hann hefði rifist við þolandann fyrr og kvöldið og hefði þá annað sakamál sem álærði átti hlut að komið upp. Játaði hann brot sitt. Fram kemur að rannsókn málsins hafði lokið 24. September 2014 en ákæra í málinu ekki gefin út fyrr en rúmu ári seinna, eða 27. nóvember 2015. Í ljósi þessa og fleiri atriða var ákveðið að skilorðsbinda dóminn að stórum hluta.

Haft er eftir Páli Björnssyni, lögreglustjóra á Norðurlandi vestra á vefnum mbl.is í dag að mistök hafi valdið því að langur dráttur varð á því að málið var sent frá lögreglunni til ríkissaksóknara. Segir Páll að sex mánuðir hafi liðið frá því „raunverulega var lokið að rannsaka málið“ þar til það var sent ríkissaksóknara. Eftir það hafi átta mánuðir liðið þangað til ákæra var gefin út.

Páll segir þarna vera um mistök að ræða sem embættið verði að læra af, en ástæðan hafi verið sú að menn voru ekki vissir um að málið væri búið. Meðal annars hafi menn haldið að ákveðið hótunarmynstur tengdist málinu og viljað kanna það frekar. Niðurstaðan hafi orðið sú að „vera ekkert að fara meira út í það í þessu máli,“ segir Páll meðal annars í samtali við mbl.is.

 

Fleiri fréttir