Hleypt verður á stofnlögn á morgun

Þessi mynd af þeim Unni Valborgu Hilmarsdóttur og Brynjólfi Sveinbergssyni var tekin þegar vatni var hleypt á stofnlögn í Miðfirði í desember í fyrra. Mynd: Norðanátt
Þessi mynd af þeim Unni Valborgu Hilmarsdóttur og Brynjólfi Sveinbergssyni var tekin þegar vatni var hleypt á stofnlögn í Miðfirði í desember í fyrra. Mynd: Norðanátt

Í sumar og haust hafa staðið yfir miklar framkvæmdir hjá Hitaveitu Húnaþings vestra í Víðidal.  Verklegum framkvæmdum þessa árs er nú að mestu lokið og hleypt verður á stofnlögn á morgun, fimmtudaginn 15. desember. Frá þessu er greint á vef Húnaþings vestra.

Um er að ræða hitaveitulögn frá Gauksmýri að Lækjamóti, ásamt leggjum að Sporði, Hrísum, Galtarnesi og Bakka. Út frá stofnlögn geta 9 bæir tengst veitunni en í næsta áfanga verður hleypt á legg að Bakka og eiga þá allir bæir á þeirri leið að geta tengst, að því er fram kemur á vef Húnaþings vestra.

Um 96 gráðu heitt vatn kemur úr borholu í landi Syðri Reykja og er því nú dælt um Miðfjörð, til Hvammstanga, Línakradal og Víðidals. Samhliða lagningu dreifikerfis hitaveitu var lagður ljósleiðari í öll hús sem tengjast hitaveitunni. Tengivinna mun fara fram á fyrri hluta næsta árs og stefnt er að því að allir bæir á leiðinni geti tengst fyrir apríl lok 2017. 

Fleiri fréttir