Hólahátíð 14. – 16. ágúst 2015

Árleg Hólahátíð verður haldin á Hólum í Hjaltadal um næstu helgi og hún hefst föstudaginn 14. ágúst og stendur til sunnudagsins 16. ágúst. Að vanda verður mikið um dýrðir og meðal annars hægt að berja augum hina nýopnuðu Biblíusýningu í Auðunarstofu haldin í tilefni af 200 ára afmæli Hins íslenska biblíufélags.

Biblíurnar eru úr safni sr. Ragnars Fjalars Lárussonar og mun þetta vera eitt stærsta og merkilegasta biblíusafn landsins. Meðal þeirra gersema sem sýndar verða eru Gutenbergsbiblía, Biblía Gustavs Vasa, Biblía Kristjáns III, Þorláksbiblía, Steinsbiblía, Summaria, Biblia laicorum, Nýja testamenti Guðbrands biskups og margar fleiri fágætar biblíur. Þess má geta að á Hólum var prentuð fyrsta íslenska biblían, Guðbrandsbiblía, árið 1584 og er hún til sýnis í Hóladómkirkju.

Dagskrá hátíðarinnar er eftirfarandi:

Föstudagur 14. ágúst
Kl. 10:00-18:00 Biblíusýning opin í Auðunarstofu.
Kl. 20:00 Hólabiblíur – um þrjár fyrstu biblíuútgáfur Íslendinga.
Sr. Sigurður Ægisson flytur erindi í Auðunarstofu.

 

Laugardagur 15. ágúst
Kl. 10:00 Pílagrímaganga frá Gröf heim að Hólum með biblíulestrum. Lagt af stað frá Grafarkirkju kl. 10:00 og tekur gangan um sex tíma. Helgistund við heimkomu í Hóladómkirkju. Fólki ekið til baka að Gröf.
kl. 13.00 Ganga yfir Hrísháls í fylgd Önnu Þóru Jónsdóttur frá Vatnsleysu. Gengið inn í söguna. Lagt af stað frá Enni kl. 13:00 og tekur gangan þrjá tíma heim að Hólum.
Á veginum verða hin ýmsu óvæntu fyrirbæri og ævintýraverur úr raunveruleika fyrri tíma. Sundlaugin á Hólum opin kl. 14:00-18:00
Kl. 17:00 Dagskrá fyrir börn á öllum aldri og fjölskyldur þeirra í Hóladómkirkju í umsjá Helga Zimsen og Rósu Jóhannesdóttur.
Kl. 18:00 Kvöldverður. Hlaðborð með gómsætum Biblíumat Undir Byrðunni. Uppskriftirnar eru úr bók sr. Svavars A. Jónssonar.
Sunnudagur 16. ágúst
Kl. 11:00 Dr. Gunnlaugur A. Jónsson flytur erindið: Áhrifasaga Saltarans. Um áhrif Davíðssálma í sögu og samtíð á bókmenntir, listir og kvikmyndir.
Kl. 14:00 Hátíðarmessa í Hóladómkirkju. Prestsvígsla. Mag. theol Halla Rut Stefánsdóttir verður vígð til að gegna sóknarprestsembætti í Hofsós- og Hólaprestakalli.
Veislukaffi í Hólaskóla.
Kl. 16:30 Hátíðarsamkoma í Hóladómkirkju Ólöf Nordal innanríkisráðherra flytur hátíðaræðu.
Ragnhildur Ásgeirsdóttir framkvæmdastjóri Hins íslenska biblíufélags flytur ávarp.
Kirkjukór Hóladómkirkju flytur biblíuljóð.

Fleiri fréttir