Hólakaup opnar á Hólum

Á Hólum hefur verið opnuð verslun  í lobbýi Ferðaþjónustunar á jarðhæð  Hólaskóla sem ber nafnið "Hólakaup." Í sumar verður opnunartími verslunarinnar frá kl. 8-22 alla daga en opnunartími verður endurskoðaður í haust og eitthvað styttur, að sögn Hildar Þóru Magnúsdóttur sem nýverið tók við sem rekstrarstjóri Ferðaþjónustunar á Hólum.

-Hér er hægt að fá þurrvöru, hreinlætisvöru, grillmat, sósur, brauð, álegg, mjólkurvörur, örbylgjurétti, gos, snakk og sælgæti. Þannig að ferðamaðurinn ætti að fá allt það nauðsynlegasta í útileguna eða sumarhúsið.

Hér er sumarið að fara í gang og hér verður ýmislegt skemmtilegt um að vera í sumar. Helgina  23.-24. júní  nk. verður hér Barokkhátið og á hverjum sunnudegi í sumar verða tónleikar í kirkjunni og svo verður kaffisala á veitingastaðnum okkar "Undir Byrðunni". Svo verður auðvitað mikið að gera hér í kringum landsmót hestamanna, segir Hildur Þóra og bætir við að ávallt verði á boðstólnum góður matur, menning, saga og náttúra eins og hún gerist best.

Fleiri fréttir