Hólar verði gerður að þjóðarleikvangi íslenska hestsins

Séð yfir Landsmótssvæðið/Mynd: PIB
Séð yfir Landsmótssvæðið/Mynd: PIB

Byggðarráð Skagafjarðar hefur óskað formlega eftir samstarfi við stjórnvöld og Landsambandi hestamannafélaga um að Hólar í Hjaltadal verði gerður að þjóðarleikvangi íslenska hestsins.

Í bókun Byggðarráðsins segir að Háskólinn sé einn af grunnstoðum í skagfirsku samfélagi. Þar segir enn fremur að það gefi Skagafirði tækifæri til framfara fyrir íbúa og atvinnulíf að á Hólum séu öll skólastig innan héraðsins, frá leikskóla til háskóla. Í bókunninni segir einnig að sú umgjörð sem sköpuð hefur verið á Hólum sé einstök á heimsvísu og að öll uppbygging í fortíð, nútíð og framtíð muni nýtast Háskólanum á Hólum, styrkja stöðu hans og festa enn frekar í sessi.

Jafnframt er talað um í bókun Byggðarráðsins að auka þurfi rekstrarfé til skólans og tryggja rekstrargrundvöll hans til framtíðar. Skuldir hafi safnast upp hjá skólanum sem þarf að taka á, til að veita skólanum andrými til framþróunar. Skuldirnar hafi safnast upp meðal annars vegna þess að fjárframlög til skólans hafi hingað til ekki verið í samræmi við rekstrarforsendur. Þá þurfi að styrkja net opinberu háskólana enda sé háskólanetið ein af forsendum samstarfs háskólanna á Íslandi og lykilþáttur í samstarfi þeirra í milli.
Að lokum skorar Byggðarráð á ráðherra að skoða allar mögulegar útfærslur með það að markmiði að styrkja Háskólann á Hólum sem sjálfstæða menntastofnun og tryggja til framtíðar að yfirstjórn og umsjón haldist í Skagafirði.

Fleiri fréttir