Hollywoodhorn vikunnar
Hin síhressa Sharon Osbourne, eiginkona rokkarans Ozzy Osbourne, lenti í fremur leiðinlegu atviki á dögunum. „Ég vaknaði einn morguninn og annað brjóstið var einhvern veginn miklu lengra en hitt.. Svo ég hugsaði, þetta getur ekki verið í lagi,“ sagði Sharon.
Hún fór til læknis til að láta kanna málið og sagði hann henni að að lekið hefði úr öðrum sílíkonpúðanum niður í maga og þurfti hún því að láta fjarlægja sílíkonpúðana. „Nú líður mér ekki lengur eins og það sé vatnsrúm ofan á bringunni á mér,“ sagði hin 59 ára gamla Sharon.
Bæði Leonardo Dicaprio og Gossip Girl stjarnan Blake Lively voru ekki lengi að snúa sér að öðrum eftir að þau hættu saman á dögunum, ef marka má slúðurmiðlana. Leo hefur verið orðaður við ástralska fyrirsætu að nafni Alyce Crawford en hann hefur verið við tökur á kvikmyndinni The Great Gatsby í Sydney.
Sögusagnir eru um að Blake Lively og Ryan Reynolds séu að stinga saman nefjum, en þau léku saman í myndinni The Green Lantern. Samkvæmt slúðurfréttamiðlinum E Online hafa þau eytt miklum tíma saman eftir að tökum á myndinni lauk.
Svo er það framhaldsaga frá síðustu viku um sjarmatröllið Arnold Schwarzenegger. Nú hefur hann opnað safn sér til heiðurs, í bænum Thal í Austurríki, þar sem kappinn fæddist. Safnið er tileinkað lífshlaupi hans og segir hann það vera „tákn viljastyrks“ og dæmi um að „allir eigi möguleika“ á því að ná langt í lífinu. Þar afhjúpaði hann bronsstyttuna sína sem sýnir Schwarzenegger hnykla vöðvana.