Hollywoodhorn vikunnar
Hollywoodhornið fer um víðan völl þessa vikuna. Fótboltamaðurinn Ryan Giggs var staddur, ásamt eiginkonu sinni Stacey, á veitingastað í Manchester fyrr í vikunni þegar þau rákust á Natöshu, fyrrum eiginkonu bróður Giggs, en eins og margir vita hélt Ryan við Natöshu svo árum skipti.
Að sögn sjónarvotta fóru þar fram snörp orðaskipti. Stacey öskraði á Natöshu: „Þú ert ömurleg fyrrverandi svilkona,“ þá öskraði Ryan á Natöshu: „ég unni þér aldrei, þetta var bara kynlíf fyrir mér.“ Svo skammaði hann hana fyrir að selja sögu þeirra. Þá hló Natasha og sagði að peningunum hefði verið vel varið í brjóstastækkun. (Heimild: The Sun)
„Ojojoj, hvað er að gerast...“
Indverska prinsessan Leoncie er búin að senda frá sér nýja slagara sem nefnist Litli sjóarinn. Myndbandið hefur farið sem eldur í sinu um netheima, með metáhorf á Youtube. Hér er hægt að sjá myndband Leoncie, þar syngur hún um timburmenn litla sjóarans sem fór á glatað ball:
„Ojojoj, hvað er að gerast, allt snýst í hausinum á mér, maginn á mér hann er að rokka, ekki væri gott að fá niðurgang hér...,“ syngur prinsessan.
Stærsta Hollywood-myndin til þessa
„Skagfirðingurinn“ Baltasar Kormákur var að ganga frá samningum þess efnis að hann komi til með að leikstýra myndinni „2 Guns“ og verður þetta hans stærsta Hollywood-mynd til þessa. Þá munu Mark Wahlberg og Baltasar leiða saman hesta sína á ný, þar sem Mark fer með aðalhlutverkið í myndinni. Einnig eru viðræður í gangi við Vince Vaughn, þó er ekkert staðfest í þeim efnum.
Talið er að kostnaðurinn við myndina verði um 60 – 90 milljónir dollara, eða um sex til tíu milljarðar íslenskra króna, sem er næstum helmingi dýrari en Contraband. Gert er ráð fyrir að tökur hefjist í mars 2012. Hér er hægt að lesa meira um myndina og samstarf Baltasars og Marks.