Hollywoodhorn vikunnar

Bandaríska söngkonan Jessica Simpson hefur staðfest að hún gangi með barn undir belti. Miklar getgátur hafa verið um ástand hennar upp á síðkastið en talið er að OK Magazine hafi borgað Jessicu rúmar 57 milljónir krónar fyrir að rjúfa þögnina. Barnsfaðir hennar er NFL-leikmaðurinn Eric Johnson en þau trúlofuðu sig fyrir ári. Jessica segist hæstánægð með óléttuna og kveðst glöð að geta loksins borðað allt sem hún vill.

 

Ekki er annað hægt en samgleðjast Jessicu sem gekk í gegnum fremur erfitt tímabil ekki alls fyrir löngu. Á sama tíma og slitnaði uppúr sambandi hennar við NFL-leikmanninn Tony Romo urðu draumar hennar að engu í misheppnaðri tilraun til að hasla sér völl í kvikmyndaleik. Þá velti öll heimsbyggðin sér uppúr því hve mikið stúlkugreyið hafði bætt á sig og svo til að toppa allt var hundurinn hennar Daisy étin af sléttuúlfi.

 

Berry tilbúin í hnapphelduna

Þeir eru eflaust margir karlarnir sem munu gráta í koddann í kvöld, en Halle Berry segist vera tilbúin til að ganga í hjónaband í þriðja sinn. Ofurskutlan er nú í sambandi með franska leikaranum Olivier Martinez en þau kynntust við tökur á myndinni Dark Tide. Samkvæmt heimildamanni Star tímaritsins hefur Berry fundið sálufélaga sinn í Olivier og vill ólm eyða með honum æfinni.

 

Jordan gefur út enn eina ævisögu sína

Aðdáendur hinnar 33 ára gömlu glamúrfyrirsætu Jordan, eða Katie Price, geta nú tekið gleði sína á ný. Hún er um þessar mundir að gefa út ævisögu sína, en um er að ræða fimmta bindið í bókaflokknum. Í hinum fjórum bindunum er hægt að lesa um fjölskrúðugt lífshlaup hennar en ekki er hægt að segja annað en að hún sé athafnasöm kona.

Utan við að sinna enn fyrirsætustörfum hefur hún komið á laggirnar fjölmörgum vörulínum undir eigin nafni, tekið þátt í raunveruleikaþáttum, gefið út geisladisk og nú ætlar hún að hefja útgáfu á tímariti fyrir karlmenn. Í nýjasta bindi ævisögu hennar má lesa um allt það helsta sem á daga hennar hefur drifið frá síðustu bók, m.a. skilnaðinn við hinn 25 ára gamla Leandro Penna og fleira hressandi, en eins og hún sagði sjálf: „Ég hef átt ömurleg þrjú ár en nú er ég að koma undir mig fótunum aftur. Það er fullt að gerast.“

 

Lést úr ofneyslu áfengis

Lát bresku söngkonunnar Amy Winehouse hefur verið úrskurðað óhapp vegna ofneyslu áfengis. Winehouse hafði lengi barist við áfengis- og vímuefnafíkn en allt kom fyrir ekki og Winehouse lést einungis 27 ára gömul.

Þegar hún lést var hún með 416 mg af hreinum vínanda í hverjum 100 ml af blóði sínu, sem er fimmfalt meira en leyfilegt magn fyrir þá sem ætla að keyra í Bretlandi. Þrjár tómar vodkaflöskur fundust á heimili hennar og er talið að hún hafi klárað þær sjálf kvöldið sem hún lést.



Fleiri fréttir