Hollywoodhorn vikunnar
Hjónaskilnaður Kim Kardashians og Kris Humphries hefur verið á allra vörum sl. viku einungis 10 vikum eftir „brúðkaup aldarinnar“ í Hollywood. Ástæðan sem hefur verið gefin fyrir skilnaðinum er óleysanlegur ágreiningur og segir Kim í yfirlýsingu sem hún sendi frá sér að þetta hafi alls ekki verið auðveld ákvörðun.
Merkilegt nokk hafa gagnrýnisraddir verið á lofti síðan skilnaðurinn varð opinber þar sem Kim hefur verið sökuð um að hafa gifst Kris einungis fyrir athygli og peninga. Kim hefur svarað þeim ásökunum fullum hálsi: „Ég giftist af ást. Ég trúi því ekki að ég þurfi að verja það. Ég hefði aldrei eytt svo miklum tíma í eitthvað bara fyrir sjónvarpsþátt!“ Þar höfum við það.
Lindsay á hrakhólum
Allt gengur nú á afturfótunum hjá fyrrum barnastjörnunni Lindsay Lohan, en hún er á leið á bak við lás og slá. Leikkonan var dæmd til 30 daga fangelsisvistar fyrir búðarhnupl en hún braut skilorð þegar hún var gripin við að næla sér í skartgripi. Lindsay játaði sekt sína og mun hefja afplánun í næstu viku.
Fleiri ólánsfréttir hafa borist af Linday en hún hafði setið fyrir hjá Playboy tímaritinu fyrir nokkru og var kölluð aftur til myndatöku þar sem myndirnar þóttu engan vegin nógu góðar til birtingar. Ææ...
Hrekkjavakan var um síðustu helgi og þá keppast stjörnurnar gjarnan við að vera sem frumlegastar og að vekja á sér sem mesta athygli, ýmist með því að vera óhugnanlegar eða kynþokkafullar. Hér eru nokkrar myndir af vel völdum stjörnum.