Hollywoodhorn vikunnar
Orðrómur er á kreiki um að snillingurinn Ricky Gervais verði fenginn til að vera kynnir á Golden Globe verðlaunahátíðinni þriðja árið í röð og kemur það í ljós á næstu vikum.
Ricky er með hárbeittan húmor og skaut föstum skotum á stjörnurnar á síðustu tveimur verðlaunahátíðum á mjög eftirminnilegan hátt. Hér má sjá myndbönd frá Golden Globe 2010 og 2011. Nú er það bara að leggjast á bæn.
Neitar að skilja
Hjónaskilnaður Kim Kardashian og Kris Humphries er enn á allra vörum en nýjustu fréttir herma að nú neiti Kris að skilja þar sem hann segist ekki trúa á skilnað.
Haft er eftir honum að hann sé harðákveðinn í að láta hjónabandið ganga upp og ætli að gera hvað sem er til að svo megi verða. Kim fór frá Hollywood til Kris í Minnesota á dögunum til að ræða málin og nú verður heimsbyggðina að bíða og sjá hvort Kris nái að sættast við Kim...
Skæður stelpuslagur
Óheppnin hefur elt fleiri í Kardashian fjölskyldunni upp á síðkastið en stjúpbróðir Kims, Brody Jenner lenti á sjúkrahúsi þegar hann var að reyna að stilla til friðar á Hollywood Roosevelt hótelinu á dögunum.
Þar hafði kærasta hans, engin önnur en söngkonan Avril Lavigne, lent í slagsmálum við aðra stelpu með fyrrgreindum afleiðingum. Samkvæmt lögregluskýrslu hafði Brody verið fórnarlamb lífshættulegs vopns en hann var laminn í höfuðið með flösku.


