Hollywoodhorn vikunnar

„Við ákváðum hjónin að vera bara heima þessa helgi og sátum í rauninni bara heima með rauðvínsglas og harðfisk þegar við fengum þessar fréttir,“ sagði leikstjórinn Baltasar Kormákur í viðtali við mbl.is. Kvikmynd hans Contraband var frumsýnd í Bandaríkjunum nú um helgina og var tekjuhæsta kvikmyndin í kvikmyndahúsum þar vestra.

Talið er að myndin hafi  halað inn vel á þriðja tug milljóna dollara í tekjur þessa fyrstu sýningarhelgi, en hún kostaði um 25 milljónir dollara í framleiðslu. Að sögn Baltasars hringdi síminn látlaust í gær á heimili Baltasars að Hofi. Þá hringdu þeir Mark Wahlberg sem fer með aðalhlutverkið í myndinni, yfirmaður Universal, sem framleiðir og dreifir myndinni, og forstjóri NBC, sem á Universal. Mikil gleði ríkir með viðtökur myndarinnar.

Skilnaðardeila Cals og Önnu Mjallar 

Hinn forríki og harðfullorðni bílasali Cal Worthington er sannfærður um að íslenska söngkonan Anna Mjöll hafi einungis gifst honum til fjár en Anna Mjöll fór fram á skilnað á dögunum eftir 8 mánaða hjónaband. 50 ára aldursmunur er á hjónaleysunum en Cal er fæddur árið 1920 og Anna Mjöll 1970.

Samkvæmt TMZ fer Anna Mjöll fram á að fá framfærslu frá Cal og nú hefur harðnað í deilunni og Anna Mjöll fengið lögfræðingin Mark Vincent Kaplan til liðs við sig. Hann hefur unnið sér það til helst frægðar að hafa unnið fyrir Kevin Federline, fyrrverandi eiginmann söngkonunnar Britney Spears, í forræðisdeilu Federlines gegn söngkonunni.

Fleiri fréttir