Hólmagrundin hefur verið endurreist
Einhverjir íbúar á Hólmagrundinni á Króknum hafa kannski verið með böggum hildar um helgina og haldið að til stæði að leggja götuna niður. Sá kvíði var þó óþarfur þar sem það var bara hinn ofsafengni Kári sem tók fram fyrir hendurnar á sveitarfélaginu með því að leggja skiltið með nafni Hólmagrundar á hliðina í bylnum á laugardaginn.
Kári fær þó engu ráðið og nú strax á mánudagsmorgni voru kappar mættir á svæðið með rafsuðutæki og annað fínerí og reistu Hólmagrundina við.
Þessa mynd birtist á Sauðárkrókur - Bærinn undir Nöfum um helgina. Hólmagrundin ansi lágt stemmd.
Veðrið sem gerði á laugardag var eitt það versta á Sauðárkróki í vetur, vart hundi út sigandi og að sjálfsögðu bar lætin upp á fermingardegi. Skiltið góða stendur á horni Hólmagrundar og Hegrabrautar og getur orðið all rosalegur vindstrengur þar.