Hraðbankinn á Hofsósi loks í lagi

Eftir að Nýji Kaupþingbanki lokaði útibúi sínu á Hofsósi í árslok 2009 hefur verið þar staðsettur hraðbanki sem á að þjóna íbúum Hofsóss og nágrennis. Hefur ánægja íbúa verið blendin með skerta þjónustu en undanfarnar tvær vikur hefur þó gremjan verið mikil þar sem hraðbankinn hefur verið bilaður.

-Að þessir bankar séu ekki í lagi í þetta langan tíma finnst mér vera mjög döpur þjónusta. Það er margt gamalt fólk hér á Hofsósi sem þarf á þessari þjónustu að halda en er hvorki með nettengingu né í daglegum ferðum upp á Krók, sagði einn óánægður viðmælandi Feykis sem fannst illa farið með íbúa svæðisins, þessar tvær vikur sem bankinn hefur verið bilaður.

En nú er bankinn kominn í lag og vonandi að hann taki ekki upp á því að auka gremju þeirra er á honum þufa að halda.

Fleiri fréttir