Hreindís enn á vinsældarlista Rásar 2
Hreindís Ylva situr sem fastast inn á vinsældarlista rásar tvö með fallega lagið hans Geirmundar Valtýssonar, Björt nótt. Til þess að halda henni þar inni áfram þarf að kjósa og kjósa með því að fara inn á http://www.ruv.is/topp30 velja hana og 4 önnur lög.....skrolla svo niður og skrifa summuna og kjósa.
Þó ekki sé búið að vísa þessu lagi í þjóðaratkvæðagreiðslu er samt freistandi fyrir landsbyggðamiðil að benda á sitt fólk og styðja við bakið á því en eins og allir vita er Hreindís Skagfirðingur dóttir Huldu Jónasar (Ninna málara) og Erlu Gígju Þorvaldsdóttur á Sauðárkróki.